Níðingsverk gegn hjálpar og félagsstarfi kirkjunnar.

AlbumImageCAC0K5BF

Já, þetta er sorgleg byrjun á árinu 2010.

Þetta sorglega níðingsverk beinist ekki eingöngu gegn Grensáskirkju heldur gegn öllu hjálpar og félagsstarfi Þjóðkirkjunnar.

Í Grensáskirkju og safnaðarheimili hennar eru til húsa Æskulýðssamband Kirkjunnar í Reykjavík, Fangaprestur þjóðkirkjunnar, Tónlistarskóli Þjóðkirkjunnar, Prestur heyrnarlausra og síðast en ekki síst Hjálparstarf þjóðkirkjunnar.

Skömm þessara níðinga sem verkið frömdu er því meiri.

 


mbl.is 24 rúður brotnar í Grensáskirkju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Arnold Björnsson

Já tek undir með þér. Það er ömurlegt þegar eigur einstaklinga, fyrirtækja og stofnana eru skemmdar. Vonandi að flestir séu tryggðir fyrir þess háttar tjóni.

Sé samt ekki hvers vegna skömmin er meiri í þessu tilfelli en þegar t.d. leikskólar og grunnskólar verða fyrir svipuðum gjörningum. Ja eða íbúð einstæðrar móður í Breiðholti sem ekki hefur haft efni á að tryggja sig.

Arnold Björnsson, 1.1.2010 kl. 14:08

2 Smámynd: Þórhallur Heimisson

Nei ég er sammála - skömmin er alltaf jafn mikil - en þetta er eins og að ráðast á Rauða krossinn eða aðrar hjálparstofnanir - og það þykir mér auka skömmina enn meir -

Þórhallur Heimisson, 1.1.2010 kl. 15:29

3 Smámynd: Arnold Björnsson

Ef Jesú hefur verið eins og sumir presentera hann að þá held ég að hann hefði ekki hrópað "níðingar þið brutuð gluggann minn".

Frekar held ég að hann hefði boðið þessum misyndismönnum aðstoð sína í þeim vanda sem þeir glíma við.

En kirkjan er eitt, Jesú er annað.

Arnold Björnsson, 1.1.2010 kl. 17:17

4 Smámynd: Þórhallur Heimisson

Ég er nú viss um að Grenáskirkja er tilbúin að hjálpa þessum mönnum - og ég hvet þá til að hafa samband við sóknarprestinn í Grensáskirkju og bjóða fram aðstoð sína við að laga það sem þeir skemmdu.

Þórhallur Heimisson, 1.1.2010 kl. 21:28

5 Smámynd: Árni Þór Björnsson

Illa dulin reiði fær oft útrás á annarlegan hátt og ég stórefa að ætlunin hafi verið að skaða eftirfarandi : Æskulýðssamband Kirkjunnar í Reykjavík, Fangaprestur þjóðkirkjunnar, Tónlistarskóli Þjóðkirkjunnar, Prestur heyrnarlausra og síðast en ekki síst Hjálparstarf þjóðkirkjunnar.

Nei hér er líklegast hópur ungmenna að verki sem ráfar um afskiptalaus og espa þeir hvorn annan upp í hrein skemmdarverk á stöðum sem enga gæslu hafa. Því verða skólar, dagheimili og í undantekningartilfellum kirkjur fyrir barðinu á slíkum einstaklingum.Oft geta þeir ekki gefið neina ástæðu fyrir athæfinu nema..bara..þetta var þarna...uuh...duuuh...veita ekki...

Þetta er sorglegt en í raun og veru hefur þessum ungmennum ekki verið inrætt eðlileg viðmið hvað varðar hegðun og umgengni. Ég fagna sérlega síðustu ummælum Þórhalls Heimissonar og bið að sú ósk rætist að viðkomandi lagi til eftir sig og iðrist gjörða sinna.

Pax vobiscum

Árni Þór Björnsson, 1.1.2010 kl. 22:59

6 Smámynd: Arnold Björnsson

Sóknarpresturinn í Grensáskirkju virðist taka þessu af aðeins meiri yfirvegun og umburðarlyndi en þú Þórhallur og svo ég tali nú ekki um biskupinn sem segir þetta vega að grunnstoðum siðaðs samfélags. Er hægt að vera meira dramatískur. Rúður brotnar og þessi viðbrögð. Hvað ætli séu brotnar margar rúður á íslandi ár hvert af druknum ólátabelgjum? Ég hef enga trú á að þessar brotnu rúður skaði starfsemi þessar stofnana og ekki stoppaði þetta messuhald á nýársdag.

Þetta upphlaup kirkjufólks vegna þessa leiðinda atviks er vandræðalegt fyrir kirkjuna. PR stunt sem kilkkaði.

Arnold Björnsson, 2.1.2010 kl. 11:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband