Þrjú pláss losna á næsta hjónanámskeiði.

saf14 Þrjú pláss voru óvænt að losna á næsta hjónanámskeiði Hafnarfjarðarkirkju sem haldið verður 13. og 20. maí.

Áhugasöm geta haft samband á thorhallur33@gmail.com.

 


Boðunardagur Maríu

l119h15_818698.jpg Sunnudaginn 21. mars ber að þessu sinni upp á boðunardag Maríu, en boðunardagur Maríu er frá fornu fari hinn 25. mars.

 

Guðspjall boðunardagsins segir frá því þegar erkiengillinn Gabríel birtist Maríu í Nasaret til að flytja henni boð frá Guði.

 

Um erkiengilinn Gabríel mætti flytja langt mál, en hann er einn aðal-sendiboði Guðs til manna í Biblíunni og þó víðar væri leitað.

 

María er aftur á móti unglingsstúlka þegar sagan gerist, trúlofuð manni sem heitir Jósef, örugglega ekki eldri en 14 ára ef við miðum við giftingaraldur stúlkna í Ísrael á tímum Jesú.

 

Boð Gabríels til Maríu eru tvennskonar. Annarsvegar þau að hún njóti náðar Guðs umfram aðra menn. Hinnsvegar að Guð hafi útvalið hana til að fæða son. Hún á að gefa honum nafnið Jesú og hann mun ríkja yfir veröldinni að eilífu. 

 

María verður óttasleginn þegar hún fær boðin og skilur ekki hvernig þetta megi verða – hún sem hefur aldrei verið með karlmanni. En engillin segir henni að óttast ekki, andi Guðs og kraftur hins hæsta muni yfirskyggja hana, og barnið verði því heilagt – sonur Guðs.

 

Þá segir María: „Sjá, ég er ambátt Drottins. Verði mér eftir orðum þínum.“

 

Þessa atburða minnumst við sem sagt nú, níu mánuðum fyrir jól, en níu mánuðir eru einmitt meðgöngutími barns, og þess vegna ákvað kirkjan fyrir mörgum öldum að helga þennar dag köllun eða boðun Maríu.

 

En boðunardagur þýðir einfaldlega köllunardagur.

 

Dagurinn hefur verið haldinn heilagur allt frá 4. öld. Lúter staðfesti hann sem helgidag, enda frásögn helgidagsins kyrfilega staðfest í Biblíunni.

 

Á boðunardegi Maríu á vel við að fara með hina fornu Maríubæn sem er svohljóðandi:

 

Heill þér María, full náðar, Drottinn er með þér.

Blessuð sért þú meðal kvenna

Og blessaður sé ávöxtur kviðar þíns, Jesús.

Heilaga María – móðir Guðs.

Bið þú fyrir oss syndugum mönnum.

Bæði nú og á dauðastund vorri.

 

Ég mun predika um efni dagsins á sunnudag í Hafnarfjarðarkirkju kl.11.00, merkingu hans og fæðingar sonar Guðs í heiminn.

 

Vonandi minnast söfnuðir landsins þessa merkilega dags sem víðast.

 

Guðspjall dagsins er að finna hjá Lúkasi, í fyrsta kafla:

 

26En á sjötta mánuði var Gabríel engill sendur frá Guði til borgar í Galíleu, sem heitir Nasaret, 27til meyjar, er var föstnuð manni, sem Jósef hét, af ætt Davíðs, en mærin hét María. 28Og engillinn kom inn til hennar og sagði: "Heil vert þú, sem nýtur náðar Guðs! Drottinn er með þér."

29En hún varð hrædd við þessi orð og hugleiddi, hvílík þessi kveðja væri. 30Og engillinn sagði við hana: "Óttast þú eigi, María, því að þú hefur fundið náð hjá Guði. 31Þú munt þunguð verða og son ala, og þú skalt láta hann heita JESÚ. 32Hann mun verða mikill og kallaður sonur hins hæsta. Drottinn Guð mun gefa honum hásæti Davíðs föður hans, 33og hann mun ríkja yfir ætt Jakobs að eilífu, og á ríki hans mun enginn endir verða."

34Þá sagði María við engilinn: "Hvernig má þetta verða, þar eð ég hef ekki karlmanns kennt?"

35Og engillinn sagði við hana: "Heilagur andi mun koma yfir þig og kraftur hins hæsta mun yfirskyggja þig. Fyrir því mun og barnið verða kallað heilagt, sonur Guðs. 36Elísabet, frændkona þín, er einnig orðin þunguð að syni í elli sinni, og þetta er sjötti mánuður hennar, sem kölluð var óbyrja, 37en Guði er enginn hlutur um megn."

38Þá sagði María: "Sjá, ég er ambátt Drottins. Verði mér eftir orðum þínum." Og engillinn fór burt frá henni.

 

 

 

 


Bílabölið.

lovee.jpg Stundum velti ég því fyrir mér hvort bílar séu eitthvert mesta böl mannkyns?

Hugsið ykkur hvað bílarnir hafa kostað okkur?

Loftmengun, aðgangsharka gagnvart auðlindum jarðar, bílaborgir, hraðbrautir, slys, hreyfingarleysi og sjúkdómar af völdum þess, sóun.....svona get ég haldið lengi áfram.

Öll þekkjum við bílalánin sem hanga á jaðri lögleysunnar - og ef þau sleppa yfir lagamörkin þá eru þau siðlausustu skuldbindingar samtímans.

Kostnaður fjölskyldna af bílum er gríðarlegur, bílarnir falla hratt í verði, viðgerðarkostnaður er hár, tryggingarnar engu betri.

Og bensínverðið maður! Eða olían!

Nei - mig dreymir um bílalausa veröld -  sem því miður á erfitt uppdráttar hér á landi.

Ég man þá sælutíð þegar ég bjó í Danmörku og fór allra minna ferða í lest, strætó eða á hjóli.

Og síðar einnig í Svíþjóð þótt þá hafi ég átt gamlan Saab sem ég notaði lítið.

Hér er einhvernvegin allt gert til að maður verði að hökkta um á bílaóskapnaði.

En ég á alla vega hjólið mitt góða og ætla að nota það sjálfum mér til lífsgleði og heilsubótar nú þegar sól hækkar á lofti.

Og gefa þar með bílasölum og bensínokri langt nefTounge

 

 

 


mbl.is Olís hækkar eldsneytisverð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært hjónanámskeið á enda.

saf14

Þá var frábæru hjónanámskeiði að ljúka hér hjá okkur í Hafnarfjarðarkirkju.

Stemmningin var alveg einstök og hópurinn góður.

Enda vor í lofti og sól í sinni.

Og Hafnarfjörður skartar sínu fegurstaGrin.

Það er fullt á næsta námskeið sem verður það síðasta í bili.

Svo tekur sumarið við okkur og betri tíð með blóm í haga.

En ef að líkum lætur verður hlé á námskeiðum hjá mér næsta vetur - það fyrsta frá árinu 1996 - ef frá er talinn 11. 09. 2001 þegar námskeiði var aflýst sem þá átti að byrja.

Takk fyrir mig og frábærar undirtektir.

 


Meyfæðingin - myndlíking eða raunverulegur atburður?

null

Jæja, þá ætla ég að taka mér smá pásu frá dægurþrasinu til þess að segja ykkur frá þema næsta sunnudags hjá mér í Hafnarfjarðarkirkju.

Sunnudaginn ber upp á Boðunardag Maríu og ég ætla að fjalla um sögu hans út frá hinum klassíska texta Boðunardagsins sem er að finna í fyrsta kafla Lúkasarguðspjalls.

Og þar með kem ég auðvitað beint að kenningunni um meyfæðinguna.

Er sú kenning bara myndlíking eins og segir í nýju fermingarkveri?

Eða er um raunverulegan atburð að ræða?

Ef svo er, hverskonar atburð?

Og það sem kannski skiptir mestu máli - hvaða von, huggun og krafti miðlar Boðunardagur Marí og kenningin um meyfæðinguna til okkar í okkar daglega stríði við gengi og hrun og atvinnuleysi og depurð og lán og banka og sjúkdóma og annað það sem gerir okkur lífið leitt og dregur úr okkur kjark og von?

Ef þú vilt pæla meira í þessu er bara að mæta næsta sunnudag kl.11.00 í Hafnarfjarðarkirkju og njóta messunnar ásamt Barbörukórnum, Guðmundi organista, Guðbjörgu djákna, sunnudagaskólaleiðtogunum og okkur öllum hinum.

SjáumstWink


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband